Samskip undir nýju merki
Tímamót eru í sögu Samskipa á morgun, 30. september, þegar öll starfsemi félagsins sameinast undir einu nafni og nýju merki félagsins. Breytingunum er ætlað að styrkja enn frekar ímynd Samskipa á alþjóðlegum flutningamarkaði í kjölfar þeirrar umfangsmiklu uppbyggingar sem átt hefur sér stað á sl. 15 mánuðum, í kjölfar kaupanna á hollenska flutningafélaginu Geest North Sea Line og breska flutningafélaginu Seawheel. Hefur velta Samskipa þrefaldast eftir þessar fjárfestingar og farið úr 20 milljörðum króna árið 2003 í um 60 milljarða á yfirstandandi ári.
"Þetta eru merk tímamót í útrásarsögu okkar," segir Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa. „Það hefur verið mikið verk að sameina þessi þrjú félög í eitt og á heildina litið er útkoman í samræmi við þær áætlanir sem lagt var upp með í upphafi, að skapa stórt og öflugt gámaflutningafélag sem er leiðandi á Evrópumarkaði.“
Nafn Samskipa á allan búnað félagsins
Samhliða þessum breytingum hefur markvisst verð unnið að stefnumörkun fyrir félagið. Lögð er áhersla á að Samskip eru alþjóðlegt flutningafélag þar sem þjónusta við viðskiptavinina er í fyrirrúmi. Þá skiptir sköpum að hafa hæft og ánægt starfsfólk og er mikið lagt upp úr því að virkja krafta og kunnáttu alls starfsfólks félagsins, hvar sem það er staðsett í heiminum.
Útlitsbreytingarnar hafa takmörkuð áhrif á Íslandi en erlendis hverfa nöfn eins og Geest og Seawheel og í staðinn kemur nafn og nýtt merki Samskipa.
"Við erum stolt af þessum breytingum. Við vorum í hópi fyrstu útrásarfyrirtækjanna og lítum á þetta sem enn eitt skrefið í þeirra þróun sem átt hefur sér stað á undanförnum árum þar sem íslensk fyrirtæki eru æ meira að setja mark sitt á alþjóðleg viðskipti. Það gleður okkur líka hér heima að leggja á áfram rækt við þann frumkvöðlaanda sem einkennt hefur starfsemi Samskipa frá upphafi, bæði heima og erlendis, hjá hinu sameinaða félagi," segir Ásbjörn.
Þrjú rekstrarsvið
Starfsemi Samskipa hefur vaxið gríðarlega á þeim tæpa áratug sem er liðinn frá því að útrás félagsins byrjaði árið 1998 og skiptist reksturinn nú í þrjú meginsvið;
-
Íslandsstarfsemi.
-
Frystivöru- og flutningsmiðlun um allan heim.
-
Gámaflutningakerfi í Evrópu.
Rekstur Íslandsstarfseminnar hefur gengið mjög vel og hafa flutningarnir tvöfaldast á sl. þremur árum. Fjögurra skipa siglingakerfi félagsins sem tekið var upp fyrir nokkrum árum hefur fest sig í sessi og nýting nýju vörumiðstöðvarinnar, sem er sú stærsta sinnar tegundar hér á landi, hefur vaxið mun hraðar en áætlanir gerðu ráð fyrir. Einnig hefur starfsemi félagsins í Færeyjum, sem heyrir undir heimamarkaðinn, verið vel tekið.
Frystivöru- og flutningsmiðlun Samskipa hefur jafnt og þétt vaxið fiskur um hrygg. Tvær skrifstofur félagsins tóku nýlega til starfa í Brasilíu, þar sem megináherslan er lögð á flutningsþjónustu við ávaxta- og grænmetisframleiðendur, og fimmta skrifstofa félagsins í Asíu var opnuð fyrr á árinu. Þá er félagið með sterka stöðu í frystiflutningum og geymslu frosinna afurða í Evrópu með Ísland, Færeyjar, Noregur og Holland sem lykilsvæði.
Mestur hefur vöxturinn verið í gámaflutningaþjónustu Samskipa í Evrópu á liðnum mánuðum og samtímis því sem starfsemi félagsins er sameinuð undir einu nafni er kynnt til sögunnar nýtt nafn á gámaflutningakerfi félagsins í Evrópu; Samskip Multimodal Container Logistics (Samskip MCL). Þar er búið að tvinna saman í eitt heilstætt flutningskerfi reynslu og þekkingu starfsfólks gömlu keppinautanna, Geest, Seawheel og Samskipa.
"Útkoman er öflugasta gámaflutningakerfi Evrópu enda höfum við lagt mikla áherslu á uppbyggingu þessarar þjónustu," segir Ásbjörn. „Við veittum viðtöku tveimur sérsmíðuðum skipum fyrir Evrópusiglingar félagsins í byrjun sumar, Samskip Courier og Samskip Pioneer, og í þessum mánuði fengum við svo afhent tvö samskonar skip til viðbótar sem fengið hafa nöfnin Samskip Express og Samskip Explorer.“
Fastmótuð framtíðarsýn
"Mikil áhersla hefur einnig verið lögð á innri uppbyggingu félagsins, þ.á.m. öflugt tölvu- og upplýsingakerfi, sem mun gera félagið enn betur í stakk búið til frekari vaxtar og landvinninga. Við vinnum eftir fastmótaðri framtíðarsýn og ætlum okkur að stækka, bæði með innri vexti og með uppkaupum á öðrum félögum," segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa.

