Aukin umsvif Samskipa á Spáni
Samskip taka frá og með næstu mánaðamótum við allri gámaflutningastarfsemi Odiel Bilbao SA á Spáni en félagið hefur verið samstarfsaðili Geest North Sea Line sem Samskip keyptu á fyrri hluta síðasta árs.
Aukin umsvif Samskipa á Spáni endurspegla það markmið félagsins að styrkja enn frekar stöðu sína sem leiðandi gámaflutningafélag innan Evrópu en móðurfélag Odiel Bilbao SA, Naviera del Odiel SA sem staðsett er í Madríd, sinnir áfram öðrum þáttum tengdum flutningastarfsemi.
„Við erum að bjóða upp á mjög góðan valkost fyrir spænska inn- og útflytjendur sem stunda viðskipti á Bretlandseyjum, í Benelúx-löndunum, Þýskalandi, Skandinavíu, Eystrasaltslöndunum og Rússlandi,“ segir Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa.
Gámasiglingar Geest og Odiel Bilbao SA hófust árið 2003 og tengja saman hina kunnu hafnarborg Bilbao á norðurströnd Spánar, Tilbury á Englandi og Rotterdam. Auk siglinga á þessari leið með sérútbúnum skipum fyrir 45 feta gáma bjóða Samskip upp á fjölþátta gámaflutningsþjónustu til og frá Spáni, bæði frystiflutninga og hefðbundna gámaflutninga.
Allt starfslið Odiel Bilbao SA mun starfa áfram hjá Samskipum í Bilbao undir stjórn Pedro Medrano sem var framkvæmdastjóri Odiel Bilbao SA.

