Samskip - Fréttir

Samskip annast þjónustu við USS Wasp

16.10.2006

uss_wasp

Samskip annast þjónustu hér á landi við bandaríska herskipið USS Wasp sem er í nokkurra daga heimsókn í tilefni af nýju varnarsamkomulagi Íslands og Bandaríkjanna sem undirritað var á dögunum.

USS Wasp lagðist að Skarfabakka í Sundahöfn síðdegis á fimmtudag og var þó nokkur fjöldi fólks mættur niður að höfn til að fylgjast með þessu risavaxna skipi, sem er 257 metra langt og 32 metra breitt, leggja að með aðstoð dráttarbáta hafnarinnar.

USS Wasp er svokallað fjölnota herskip en mun mest notað í flutninga og vegur fullhlaðið ríflega 40.000 tonn.

Hingað til lands kom skipið beint frá Líbanon og tók siglingin 11 daga. Um 1.300 manns eru í áhöfninni og settu bandarísku sjóliðarnir svip sinn á mannlífið í höfuðborgini um helgina.

Samhæfingaræfing með sprengjudeild Landhelgisgæslunnar og sérsveit Ríkislögreglustjóra fer fram í dag en á morgun, þriðjudag, leggur USS Wasp úr höfn áleiðs til Bandaríkjanna.

uss_wasp_2Samskip eru umboðsmenn skipsins hér á landi og hafa séð um að útvega allan nauðsynlegan kost fyrir skipið, s.s. vistir, olíu o.fl. Félagið hefur einnig, í samstarfi við bandaríska sendiráðið, séð um samskipti við yfirvöld hér á landi, uppsetningu á öryggisbúnaði á Skarfabakka og ýmislegt fleira.

Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica