Samskip - Fréttir

Sjávarútvegssýning í Kína

8.11.2006

Samskip tóku þátt í kínversku sjávarútvegssýningunni, sem haldin var í Qingdao 1.-3. nóvember sl. Voru Samskip með hluta af bás Útflutningsráðs ásamt mörgum öðrum. Fjölmargir viðskiptavinir og aðrir gestir lögðu leið sína í básinn. Peder Winther, framkvæmdastjóri alþjóða frystivöru- og flutningsmiðlunarþjónustu hjá Samskipum var mjög ánægður með sýninguna og er bjartsýnn á framtíðina. "Við hittum viðskiptavini og vonandi væntanlega viðskiptavini.  Hér í Kína eru mikil tækifæri og Samskip ætla ekki að missa af þeim.  Starfsemi okkar í Asíu vex hratt og við ætlum okkur að veita góða þjónustu í Kína eins og alls staðar annars staðar."

      

 Image006  Image010
 Image016  Image033
 Image034  Image037


Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica