Fimm fyrirtæki verða bakhjarlar UNICEF... með rautt nef!
Í dag skrifuðu fimm af öflugustu fyrirtækjum landsins undir styrktarsamninga við UNICEF á Íslandi. Samningarnir hljóða upp á 60 milljónir króna og ná til næstu þriggja ára. Fyrsta verkefni UNICEF og nýrra bakhjarla verður að halda Dag rauða nefsins á Íslandi.
Baugur Group, FL Group, Fons, Glitnir og Samskip skrifuðu í dag undir styrktarsamninga við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi um að greiða 4 milljónir á ári hvert til næstu þriggja ára. Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, sagði af þessu tilefni að vegna stuðnings fyrirtækjanna gæti UNICEF haldið áfram starfi sínu af krafti. „Fyrirtækin fimm hafa áður styrkt UNICEF með ýmsum hætti og gerast nú bakhjarlar UNICEF af heilum hug. Þessir samningar eru 60 milljón króna virði og tryggir það að við getum haldið áfram að styðja við börn í sárri neyð," sagði Stefán við setningu fundarins.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi hefur starfað í rúm tvö ár og frá byrjun notið stuðnings Baugs Group og Samskipa sem eru stofnstyrktaraðilar. Baugur Group, FL Group og Fons styðja auk þess við menntaverkefni UNICEF í Gíneu-Bissá og þar er verið að reisa 135 skóla fyrir framlög þeirra. Samskip styrkir UNICEF einnig í dreifingu á jólakortum sem nú fara brátt í sölu. Glitnir er viðskiptabanki UNICEF og veitti rúmlega eins milljón króna fjárframlag til verkefna í maí á þessu ári og bætist nú í hóp hinna öflugu stuðningsaðila UNICEF.
Stefán sagði UNICEF á Íslandi takast á við mörg metnaðarfull og mikilvæg verkefni sem í raun og veru bjarga lífi barna. „Í næstu viku verður 150 þúsund malaríunetum dreift til barna í Gíneu-Bissá fyrir tilstuðlan Baugs Group, FL Group og Fons, auk fleiri fyrirtækja á Íslandi. Þau geta dregið úr ungbarnadauða um 10% og bjarga lífi 2-3 barna á dag. Þetta er alvara lífsins og við erum svo heppin að geta hjálpað þessum börnum. Einnig styrkja um 7000 einstaklingar UNICEF með mánaðarlegum fjárframlögum þannig að allir leggjast á eitt," sagði Stefán.
Fyrsta verkefni UNICEF og bakhjarlanna er að halda Dag rauða nefsins á Íslandi. Ilmur Kristjánsdóttir kom fram fyrir hönd íslenskra gamanleikara sem standa að átakinu og kynnti það með stæl. „Við leikarar getum kannski ekki skrifað undir fína samninga til að hjálpa börnum í neyð en við kunnum að gera okkur að fíflum í sjónvarpi og það ætlum við svo sannarlega að gera!!," sagði Ilmur og átti við beina útsendingu Stöðvar 2 í opinni dagskrá á Degi rauða nefsins, föstudaginn 1. desember næskomandi. Ilmur fékk alla til að setja upp rauð trúðanef og opnaði formlega vef átaksins www.rauttnef.is
Dagur rauða nefsins er stærsta söfnunarátak UNICEF til þessa, þar sem landsmenn eru hvattir til að gleðjast og gleðja aðra með því að kaupa rauð trúðanef til styrktar bágstöddum börnum um allan heim og skrá sig sem heimsforeldra.
Hláturinn lengir lífið!
Undir samningana rituðu:
Ásbjörn Gíslason, Samskip
Einar Sveinsson, Glitnir
Hannes Smárason, FL Group
Ingibjörg Pálmadóttir, Baugur Group
Jóhannes Kristinsson, Fons
Nánari upplýsingar um UNICEF veitir:
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi, sími 552 6300 eða 863 3134.

