Samskip - Fréttir
Ísheimar fá viðurkenningu fyrir góða vörumeðhöndlun
Ísheimar, frystivörumiðstöð Samskipa við Kjalarvog, fengu í gær afhent verðlaun fyrir góða vörumeðhöndlun. Verðlaunin eru farandbikar sem hægt er að vinna til eignar ef viðkomandi starfsstöð vinnur hann þrisvar sinnum.
Þetta er í fyrsta sinn sem verðlaunin voru afhent, en árlega verða veitt verðlaun fyrir góða vörumeðhöndlun hjá Samskipum og velur framkvæmdastjórn eina starfsstöð hverju sinni sem hlýtur verðlaunin.

