Samskip - Fréttir

Aukin umsvif Samskipa í Mið-Ameríku

22.12.2006

Vegna aukinna umsvifa Samskipa í Mið-Ameríku hefur verið samið við flutningafélagið Container Transport Solutions Inc. í Panama um að vera umboðsaðili félagsins í þessum heimshluta.

Til að byrja með er einkum um að ræða flutninga á ferskum ávöxtum frá Panama til Rotterdam en einnig er verið að kanna möguleika á flutningi sjávarfangs til Evrópu og flutning á osti og fleiri vörum frá Evrópu til Panama. Flutningar á ferskum ávöxtum frá Costa Rica til Rotterdam eru einnig til skoðunar.

„Flutningsþjónusta við ávaxta- og grænmetisframleiðendur í Mið- og Suður-Ameríku er ört stækkandi markaður og mjög áhugaverður fyrir okkur,“ segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa. „Við höfum verið að fikra okkur áfram á þessum vettvangi og opnuðum tvær söluskrifstofur í Brasilíu fyrr á árinu, í borgunum Salvador og Petrolina, og með samstarfinu við Container Transport Solutiions í Panama erum við að styrkja stöðu okkar enn frekar.“

Framkvæmdastjóri Container Transport Solutions er af dönsku bergi brotinn og heitir Paul Bastrup. Hann hefur verið búsettur í Panama í 30 ár og hefur starfað sem umboðsmaður fyrir ýmis skipafélög, nú síðast P&O Nedlloyd sem hann starfaði fyrir þar til á síðasta ári.

Heimilisfang Samskipa í Panama er:

Samskip
Container Transport Solutions
World Trade Center, 109
Calle 53, Marbella
Apartado Postal 0832-00155
PANAMA
Sími: 507+2051612
Fax: 507+66793413
Tengiliður: Poul Bastrup
Netfang: pbastrup@cableonda.net

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica