Samskip og Servinter Trans Freight í samstarf á Spáni
Flutningsmiðlunin Servinter Trans Freight (STF) mun frá og með 1. febrúar taka við allri starfsemi Samskipa í Vigo á Spáni.
Sameiginlegt markmið Samskipa og STF er að styrkja skrifstofuna í Vigo og að veita viðskiptavinum áfram áreiðanlega og faglega þjónustu á sviði frystiflutninga. Við víðtækt frystiflutninganet Samskipa bætist umfangsmikil þekking starfsfólks STF á Spánarmarkaði sem styrkir enn frekar starfsemina á svæðinu.
Servinter Trans Freight SA er hluti af Marmedsa Group. Flutningsmiðlunin býður upp á sjó- og flugfrakt, vöruhýsingu, tollafgreiðslu o.fl. Félagið hefur sérhæft sig í frystiflutningum í meira en þrjátíu ár og starfrækir skrifstofur í Madrid, Barcelona, Valencia, Bilbao, Castellón, Algeciras, Vigo og á Kanaríeyjum.
Heimilisfang skrifstofunnar í Vigo:
Servinter Trans Freight, Vigo branch
C/ García Barbón nº22, 7ºB,
36201 Vigo – Pontevedra
Sími: +34 986 450 219
Fax: +34 986 450 566
Netfang: trafico1@stfvgo.marmedsa.com

