Samskip - Fréttir
IMG_7306-eb_isheimar

Loðnuvertíðin langt komin

11.3.2008

Mikið hefur verið að gera hjá útflutnings- og stórflutningadeildum Samskipa við löndun úr loðnuveiðiskipum áður en þau halda á miðin á ný. Aflinn er að mestu leyti sendur á markaði í Asíu.

Eftir að loðnuveiðar voru heimilaðar aftur hefur loðnuveiðin gengið vel. Hrognakreisting hefur gengið vel þó einhverju minna verði fryst af hrognum nú en í fyrra. Kemur það til af sex daga veiðibanni á meðan á stofnstærðarmælingum stóð.

Mikið annríki hefur verið hjá útflutnings- og stórflutningadeildum Samskipa við löndun og aðra tengda þjónustu. Afurðir, sem landað hefur verið hjá Samskipum í Reykjavík, eru að mestu leyti geymdar í Ísheimum, frystivörumiðstöð Samskipa í Kjalarvogi áður en þær fara með skipum á markaði, en einnig eru stórar útskipunarhafnir Samskipa á loðnuafurðum í Vestmannaeyjum og á Reyðarfirði. Stærsti hlutinn fer til Kína og Japan.

Búist er við að veiðum ljúki í lok þessarar viku.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica