Samskip á stærstu sjávarútvegssýningu heims
„Þetta er tólfta árið í röð sem Samskip taka þátt í sýningunni og við hlökkum alltaf jafn mikið til að hitta viðskiptavini okkar, sem og aðra gesti í básnum okkar,“ segir Anna Guðný Aradóttir, forstöðumaður markaðsdeildar Samskipa. „Persónuleg samskipti eru mjög mikilvæg í okkar viðskiptum.“
Þjónustusvæði Samskipa í frysti- og framhaldsflutningum heldur áfram að stækka og nær yfir öll mikilvægustu svæðin fyrir sjávarafurðir og aðrar kældar afurðir, þar á meðal Asíu, Miðausturlönd, Suður- og Norður-Ameríku ásamt Afríku og Evrópu.
Samskip hafa áratuga reynslu af flutningum, vöruhýsingu og –meðhöndlun, skjalavinnslu og dreifingu, og því bjóða Samskip upp á sérhæfðar lausnir sem henta hverjum og einum viðskiptavini. „Þess vegna er sýningin í Brussel einstakur vettvangur fyrir okkur að sýna hvað í okkur býr,“ bætir Anna Guðný við. „Básinn okkar hefur alltaf verið vinsæll viðkomustaður, staður þar sem fólk stoppar við, spjallar og kynnist því sem við höfum upp á að bjóða.“
Sjá nánar um sýninguna.

