Samskip - Fréttir
Saefari

Nýr Sæfari tekinn í notkun

11.4.2008

Sæfari sigldi frá Dalvík í morgun og lagði að bryggju í Grímsey eftir hádegið. Við komuna til Grímseyjar ávarpaði Kristján L. Möller samgönguráðherra viðstadda. Fjölmargir gestir lögðu leið sína til Grímseyjar af þessu tilefni og voru þingmenn kjördæmisins þar á meðal ásamt Jóni Rögnvaldssyni vegamálastjóra. Ííbúar í Grímsey fjölmenntu og tóku vel á móti ferjunni enda hefur hennar verið beðið lengi og lýstu þeir yfir ánægju sinni með ferjuna. Kvenfélagið í Grímsey bauð viðstöddum upp á veitingar um borð.

Leiðindaveður var á leiðinni til Grímseyjar en að sögn Kristjáns Ólafssonar, forstöðumanns skiparekstrardeildar Samskipa, gekk siglingin engu að síður vel og reyndist skipið vel. Síðar í dag verður boðið upp á siglingu í kringum eyjuna og siglir ferjan aftur til Dalvíkur.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica