Heilsuátak Samskipa: starfsmönnum boðið að mæla eigið rúmmál
Höfðað er til keppnisandans hjá fólki, meðal annars með því að hvetja það til að mynda hópa sem skrá þann tíma sem varið er í hreyfingu daglega og verða þau sem best þykja standa sig verðlaunuð sérstakllega í lok átaksins. Vegleg verðlaun eru í boði, því einstaklingsverðlaun verða 30 þús. gjafabréf hjá Iceland Express og hópaverðlaun verða gjafabréf fyrir hvern þátttakanda í sportvöruverslun.
Boðið er upp á heilsumælingar þar sem hjúkrunarfræðingur mælir þyngd, hæð, þyngdarstuðul (BMI), blóðfitu, blóðþrýsting og veitir ráðgjöf um bætta heilsu. Þá hófst í dag reykleysisnámskeið "Dreptu í fyrir fullt og allt" Leiðbeinandi er Valgeir Skagfjörð, sem hefur áralanga reynslu af að hjálpa reykingarmönnum til að losna frá nikotínfíkn. Ágæt þátttaka hefur verið í gönguhópnum sem gengur í hádeginu á þriðjudögum og fimmtudögum.
Nú hafa starfsmenn Vörumóttöku Landflutninga bryddað upp á þeirri merku nýjung að bjóða þátttakendum í heilsuátakinu upp á mælingu í nýju og afar fullkomnu rúmmálsmælingaræki. Á aðeins átta sekúndum eru þeir sem þess óska bæði þyngdar- og rúmmálsmældir, nú í byrjun átaks og svo aftur að því loknu. Auk þess er fólki boðið uppá hæðarmælingu gegn vægu gjaldi. Með þessari tækni geta þátttakendur heilsuátaksins bókstaflega séð árángurinn með áþreifalegri hætti en áður hefur verið hægt á Íslandi.

