Samskip - Fréttir

Kristbergur_Jonsson
Kristbergur_Jonsson
Mynd 1 af 2
1 2

Sterkasti fatlaði maður heims einn þeirra sem halda gámunum hreinum

21.4.2008

Kristbergur er rammur að afli og með afbrigðum vinnusamur, og því hlaut hann að eigin sögn viðurnefnið “Beggi turbo” eða “túrbóinn” þegar hann vann í kjúklingabúi á sínum tíma. Hann hóf störf við gámaþvott hjá Samskipum fyrir rúmum tveimur árum og tíðindamanni þótti ástæða til að heilsa upp á kappann og inna hann nánar eftir þessu.

Aðspurður sagðist Kristbergur hafa stundað lyftingar síðstliðin sex ár, hann hefði gaman af þessu og hefði gengið vel. Hann var spurður hvort hann æfði ekki stíft. “Eins og hægt er með vinnunni, svona tvisvar til þrisvar í viku.” Hann sagðist hafa unnið í svonefndri Dauðagöngu í aflraunum, sem fælist í því að ganga 7 metra með 80 kg í hvorri hendi. Svo sló hann líka heimsmet fatlaðra í Bændagöngu. Einnig kvaðst hann hafa keppt í Powermóti með ófötluðum og að hann hefði alltaf reynt að gera sitt besta. Hvað skyldi svo helst vera framundan hjá Kristbergi?” “Þátttaka í mótinu Sterkasti maður fatlaðra 2008 núna á næstunni, síðan er ég að fara til Austurríkis að keppa í EM í fótbolta, en það er í fyrsta sinn sem Ísland tekur þátt í því, ég leik í marki. Næsta Powermót er svo í haust, þannig að það er nóg að gera, bæði í vinnunni og lyftingunum,” sagði Kristbergur Jónsson kampakátur að lokum.

Myndin hér að ofan er fengin að láni af vefnum http://kraftaheimar.net



Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica