Samskip - Fréttir
Björgunarskip Landsbjargar: hringnum lokað með stuðningi Samskipa
Björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru fjórtán talsins. Skipin eru staðsett þar sem slysahætta er talin mest vegna sjósóknar. Sérstakir sjóðir sjá um rekstur þeirra í samvinnu við björgunarsveit hvers staðar fyrir sig. Áhafnir björgunarskipanna eru mannaðar sjálfboðaliðum, en umsjónarmaður hvers björgunarskip fær greitt fyrir hlutastarf.
Með þessum áfanga er gamall draumur björgunarsveitarmanna loks að rætast, en allt frá stofnun Slysavarnafélagsins, árið 1928, hefur markmið samtakanna verið að reka björgunarskip á Íslandi, sjófarendum til aukins öryggis.
Sigurður R. Viðarsson, sem starfar að sjóbjörgunarmálum hjá Landsbjörgu, fagnar þessum merka áfanga í viðtali sem birtist nýverið við hann í Ægi, en þar segir hann m.a.: "Það má segja að staða mála varðandi björgunarskipin hringinn í kringum landið sé komin í þann farveg sem við vildum sjá." Ljóst er að full þörf er fyrir björgunarskip sem þessi, en til marks um það má nefna að árið árið 2006 voru björgunarskipin kölluð 92 sinnum út.
Nánari upplýsingar um björgunarskipin er að finna á vef Slysavarnafélagsins Landsbjargar.

