Nýtt Akrafell komið í áætlun Samskipa
Fyrr á árinu fengu Samskip afhent nýtt Hvassafell, sem siglir á móti Akrafellinu samkvæmt sömu áætlun. Nýju skipin eru töluvert stærri en þau eldri og rúma 1.139 gámaeiningar hvort, en þau fyrri gátu flutt 667 gámaeiningar.
Jafnframt hafa verið gerðar breytingar á siglingaáætluninni til að bæta þjónustu við viðskiptavini og auka áreiðanleika siglingakerfisins enn frekar. Skipin sigla nú frá Reykjavík og Reyðarfirði til Þórshafnar í Færeyjum og þaðan beint til Rotterdam áður en haldið er til Immingham á Bretlandseyjum. Þetta styttir flutningstíma frá Bretlandi til Íslands verulega auðveldar þar með viðskiptavinum innflutning frá Bretlandi.
Ganghraði nýju skipanna er einnig umtalsvert betri, eða 18,5 hnútar á klukkustund á móti 14,5 hnúta ganghraða eldri skipanna. Nýju skipin eru 149 m löng og tæplega 23 m breið. Þau voru hönnuð og smíðuð í Ørskov skipasmíðastöðinni í Fredrikshavn í Danmörku árið 1993, af sömu aðilum og hönnuðu og smíðuðu gamla Arnarfellið og Helgafellið, en þau skip þjónuðu Samskipum vel til fjölda ára.

