Samskip - Fréttir
Nýtt upplýsingakerfi og þjónustuvefur reynast mjög vel
Þegar Helgafellið leggur úr höfn nú fimmtudaginn 15. maí er ár liðið síðan öll áætlunarskip Samskipa á Íslandi fóru í DORIS, en DORIS er upplýsingakerfi sem heldur utan um allar bókunar- og flutningsupplýsingar fyrir áætlunarskip Samskipa á Íslandi.
Samhliða innleiðingu upplýsingakerfisins DORIS fyrir ári síðan var nýr þjónustuvefur Samskipa tekinn í notkun og eru viðskiptavinir Samskipa farnir að nota hann í ört vaxandi mæli.
Í viku 20 á síðasta ári hófst seinna stig innleiðingar DORIS, en þremur vikum áður var byrjað með hina svokölluðu grænu leið (Akrafell/Hvassafell). Frá og með þeim tíma var farið að vinna báðar leiðirnar að fullu út frá upplýsingakerfinu DORIS og þar með afar stórt framfaraskref stigið í skipulagi og utanumhaldi flutningaþjónustu Samskipa.

