Samskip - Fréttir
Grikkland

Samskip tengja Grikkland við þjónustunet sitt

22.5.2008

Grikkland hefur bæst við ört stækkandi þjónustunet Samskipa í Evrópu eftir að félagið hóf vöruflutninga frá Rotterdam og Mannheim til Aþenu og Þessalóníku, í samstarfi við Carel Ltd., eitt stærsta flutningafyrirtæki Grikklands. Notast er að mestu við lestar á Grikklandsleiðinni en þær hafa reynst hagkvæmur og umhverfisvænn kostur í samanburði við flutninga með skipum og bílum.

Með Grikklandsleiðinni þéttist þjónustunet Samskipa í Evrópu enn frekar og nýir flutningsmöguleikar opnast fyrir viðskiptavini Samskipa þar sem góðar tengingar eru frá Rotterdam til Bretlands og Írlands, Íslands, Skandinavíu, Eystrasaltslandanna og Rússlands. Góðar tengingar eru einnig til og frá Mannheim um alla Mið-Evrópu.

Notast er að mestu við lestar á Grikklandsleiðinni en þær hafa reynst hagkvæmur og umhverfisvænn kostur í samanburði við flutninga með skipum og bílum, ekki síst vegna síhækkandi olíuverðs. Eru lestarnar sneggri í förum en skipin og hagkvæmari en bílarnir svo samkeppnishæfni þeirra hefur aukist til muna. Einnig hefur umferð um höfnina í Piraeus, stærstu hafnarborg Grikklands, reynst bæði hæg og erfið.

 

Samskip eru eitt stærsta gámaflutningafyrirtæki Evrópu og býður félagið upp á flutninga frá dyrum sendanda að dyrum móttakanda (door-to-door) í um 30 löndum, allt frá Rússlandi í austri og Skandinavíu og Íslandi í norðri til Mið- og Suður-Evrópu. Félagið stundar nú þegar lestarflutninga milli fjölmargra Evrópulanda, s.s. Spánar, Þýskalands, Svíþjóðar, Rússlands, Póllands og Ítalíu - og nú einnig til Grikklands.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica