Samskip - Fréttir
Samskip taka þátt í að dreifa drykkjarvatni á hamfarasvæðinu
Hann sagði að sem betur fer hefði enginn meitt sig, sem væri auðvitað fyrir öllu. Og þótt ótrúlegt megi virðast hefði nánast ekkert tjón orðið í vöruhúsum Landflutninga á Suðurlandi. "Fólk var felmtri slegið og flúði strax úr húsi og ekki eru allir enn búnir að jafna sig á áfallinu," segir Sigurður. “Húsgögn ultu á hliðna eða duttu fram og prentarar fóru út á golf. Húsgögn rispuðust, en allt sem var í hillum fór út á gólf. Vatnsleiðsla fór í sundur, en það var strax brugðist við því, og því urðu engar vatnsskemmdir af þeim sökum. Aðalatriðið er þó að starfsfólkið slapp vel."
Sigurður sagði að starfsemin á Selfossi væri nánast lömuð í dag, allar stæri verslanir og fyrtæki væru lokuð. Fólk hefði í nógu að snúast við að koma heimilum sínum í samt lag og eyðilegging væri gríðarleg á heimilum fólks. Daglegt líf yrði sennilega ekki komið í eðlilegt horf fyrr en eftir helgi.
Sigurður bætti því við að Samskip hefðu lagt sitt að mörkum við þessar erfiðu aðstæður, "Björgunarsveitin hér bað okkur um aðstoð við að sækja vatn til Þorlákshafnar og dreifa því um hamfarasvæðið, því neysluvatn er ónothæft, og við brugðumst snarlega við því."
Í dag er starfsfólkið okkar á Selfossi heima að sinna sínum og sínu og Sigurður stendur vaktina einn í afgreiðslunni, þrátt fyrir að hann og fjölskyldan hafi orðið fyrir verulegum skemmdum heima eins og velflestir bæjarbúar á Selfossi

