Samskip - Fréttir
Fjölmargar nýjungar á þjónustuvef Samskipa
Undanfarna mánuði hefur verið unnið ötullega að frekari framþróun á þjónustuvef Samskipa og fjölmargar nýjungar hafa verið innleiddar. Vefurinn er þróaður áfram í náinni samvinnu við viðskiptavini með það að leiðarljósi að þjóna þeim enn betur.
Samskip hafa starfrækt þjónustuvef til margra ára en fyrir skömmu tók félagið í notkun nýjan vef. Hann býður upp á marga möguleika, m.a. er hægt að fylgjast með stöðu einstakra sendinga í flutningaferlinu, senda inn ýmsar þjónustubeiðnir, bóka flutning og fylgjast með viðskiptastöðu.
Til að auka enn notagildi nýja þjónustuvefsins var settur af stað starfshópur innan fyrirtækisins og settir saman rýnihópar meðal viðskiptavina Samskipa.
Í rýnihópunum komu fram margar hugmyndir að nýjungum og var unnið úr þeim. Margar hafa nú þegar verið framkvæmdar og er nú m.a. hægt að:
- Sjá þegar farmskrá hefur verið send í tollinn
- Skoða lausavörusendingar (LCL) í gámahreyfingum en ekki bara heilgámasendingar (FCL)
- Sjá hvort skipspóstur fylgir sendingum
- Skoða reikninga sem tengjast bókunum
- Bóka í fleiri en einum gjaldmiðli
- Skoða upplýsingar um þjónustufulltrúa og viðskiptastjóra Samskipa hjá viðkomandi viðskiptavini og skoða skráða notendur viðskiptavinar á þjónustuvefnum
- Fá bókunarnúmer þjónustubeiðnar sent í tölvupósti
Enn eru nokkur atriði í vinnslu og heldur starfshópurinn vinnunni áfram, enda er vefurinn og verður í stöðugri þróun. Sífellt kvikna nýjar hugmyndir um hvernig hægt er að gera betur, enda markmiðið að veita viðskiptavinum enn betri þjónustu.
Ábendingar og hugmyndir eru alltaf vel þegnar og er hægt að koma þeim til þjónustufulltrúa og viðskiptastjóra, sem koma þeim áfram til frekari úrvinnslu.

