Samskip - Fréttir

indonesia
Frá Indonesíu

Nýr umboðsaðili í Indónesíu

19.6.2008

Samskip hafa samið við PT Multiguna International Persada (MIP Reefer Logistics) um að annast alla flutninga fyrir félagið frá og með 1. maí 2008. Samningurinn er liður í örri þróun félagsins í Asíu og teygir þjónustunetið anga sína æ víðar.

Höfuðstöðvar MIP Reefer Logistics eru í Jakarta og starfrækir félagið nokkrar skrifstofur í Indónesíu. Hefur fyrirtækið áralanga reynslu af flutningi á frystum, kældum og ferskum afurðum sem nýtist vel fyrir viðskiptavini Samskipa.

MIP Reefer Logistics mun starfa náið með frystiflutningasviði Samskipa við þróun á flutningum heim að dyrum (e. door-to-door), en helsta útflutningsvara frá Indónesíu er sjávarfang. Hefur fyrsta sendingin af frosnum fiski til Immingham í Bretlandi nú þegar verið afgreidd.


MIP REEFER LOGISTICS
Pt. Multiguna International Persada Company
Kompleks Persada Kemala II No. 5
Kalimalang, Bekasi Barat,

Jakarta, Indonesia

Sími: +62 31 3579181
www.multiguna-ip.com



Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica