Samskip - Fréttir
Kanadiski_faninn

Nýr umboðsaðili Samskipa í Kanada

26.6.2008

Frá og með 1. júlí n.k. tekur Gillship Navigation að sér að sjá um alla flutninga á vegum Samskipa í Kanada. Gillship Navigation er öflug flutningsmiðlun sem býður flutninga á lausavöru og heilgámum. Fyrirtækið tekur við flutningum Samskipa í Kanada af Norton Lilly, sem hefur annast þá farsællega í rúman áratug.

Með samningnum við Gillship geta Samskip boðið viðskiptavinum sínum betri og víðtækari þjónustu á svæðinu. Gillship býður upp á flugfrakt, akstursþjónustu og vöruhýsingu, auk skjalavinnslu. Fyrirtækið er mestmegnis í stórflutningum, en flytur einnig hættulegan varning, og frysti- og kælivöru.

Gillship var stofnað árið 1981 og hefur vaxið jafnt og þétt allar götur síðan. Nú starfa um átttatíu manns hjá fyrirtækinu á þremur stöðum, í Montreal, Toronto og Vancouver. Fyrirtækið leggur áherslu á áreiðanlega og skilvirka flutningsþjónustu þar sem viðskiptavinurinn og þarfir hans eru í fyrirrúmi.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica