Samskip - Fréttir
Heimskort

Ný gagnvirk kort á enska vef félagsins

9.7.2008

Samskip hafa tekið í notkun ný gagnvirk kort á enska vef félagsins, samskip.com þar sem notendur geta auðveldlega nálgast þá þjónustu sem það býður upp á víðsvegar um heiminn.

Um er að ræða yfirlitskort þar sem notendur geta á svipstundu nálgast upplýsingar um skrifstofur, siglingaáætlanir og flutningaleiðir Samskipa.

Þessi nýju gagnvirku kortu eru þáttur í þeirri stefnu Samskipa að beita nýjustu og bestu samskipta- og upplýsingatækni til að þjóna viðskipavinum sínum enn betur. Í samræmi við þetta verða kortin stöðugt unnin áfram í samræmi við breytingar og þróun þeirrar þjónustu sem Samskip veita um veröld alla.

Vinsamlega komið athugasemdum og ábendingum til Friðriks Rafnssonar, vefstjóra Samskipa.

Kortin eru unnin af auglýsingastofunni Ennemm og tölvuleikafyrirtækinu Gogogic ehf.

Kortin er að finna á vefslóðinni: http://www.samskip.com/



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica