Samskip - Fréttir
Stefanía, Bryndís og Natalija

Tímamót: konur við stjórnvölinn í skipaafgreiðslunni

7.8.2008

Skipaafgreiðslan samanstendur af tveimur vöktum og nú er annarri vaktinni alfarið stjórnað af konum. Sú sem nú stjórnar vaktinni heitir Bryndís Ragnarsdóttir, en með henni starfa tveir ritarar, þær Stefanía Eyþórsdóttir og Natalija Sertvytiene. Bryndís hefur starfað hjá Samskipum í afleysingum og með skipagengi og hefur verið ritari undanfarna mánuði. Stefanía starfar sem ritari í sumar og Natalía sem er nýbyrjuð sem ritari.

Ólafur A. Ólafsson, rekstrarstjóri á gámavelli, segir að þær standi sig frábærlega í þessum krefjandi störfum. “Verkefnið felst í því að skipið kemur hér að landi með fullt af gámum frá sjö höfnum,” segir Ólafur. “Þær sjá um að taka þetta allt í land og koma þessu fyrir í vörustæðum hérna á hafnarbakkanum eða í vöruhúsi. Það sem fer í vörustæðurnar fer síðan yfirleitt beint í akstur og það er náttúrlega mikilvægt að þetta sé skráð rétt, sé á réttum stöðum í stæðunum þannig að auðvelt sé að afgreiða það aftur. Og þegar skipið er útlosað gerir rekstarstjórinn, ég eða Ómar, svokallað plan um hvað eigi að fara í skipið. Þær stjórna því síðan hvernig það fer um borð sem er náttúrlega mikil nákvæmnisvinna svo að ekki þurfi að vera að færa til og leita upp gáma í erlendum höfnum,” sagði Ólafur að lokum.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica