Samskip - Fréttir
Marilyn Herdís Mellk

Skapandi svunta frá Samskipum

11.8.2008

Kynningarefni frá Samskipum ratar víða og margt af því er afar nytsamlegt. Dæmi um það er forláta svunta merkt Samskipum sem listakonunni Marilyn Herdís Mellk áskotnaðist fyrir nokkrum árum og hefur reynst henni afar vel í sköpunarstarfinu.

Marilyn Herdís Mellk hefur verið með vinnustofu ásamt öðrum grafíklistakonum að Laugavegi 1b undanfarin ár, en nú eru þær fluttar að Korpúlfsstöðum, en hún er einnig með vinnustofu heima í bílskúrnum. Listsköpunin er hennar aðalstarf (eina starf) og hún selur sín verk í öllum helstu galleríum, Gallerí Fold, Gallerí List og Smíðar og skart í Reykjavík og Listfléttunni á Akureyri.

Aðspurð sagði Marilyn Herdís Mellk að svuntan góða væri búin að þjóna henni í fjöldamörg ár eftir að Kristján Óskarsson, eiginmaðurinn hennar, fékk hana í gjöf frá Samskipum. Hún væri orðin alþakin málingu og hefði komið að mjög góðum notum!

Nánari upplýsingar um listakonuna



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica