Samskip - Fréttir
Handbolti

Starfsfólk Samskipa studdi handboltalandsliðið af krafti

22.8.2008

Víða lá við að vinna stöðvaðist um hádegisbil vegna leiks Íslands og Spánar í handbolta á Ólympíuleikunum í Peking í Kína. Starfsfólk Samskipa lét sig ekki vanta að hvetja strákana, enda stóð landsliðið sig frábærlega vel og unnu verðskuldað 36-30. Víða um fyrirtækið var kveikt á sjónvörpum og skjám þar sem fólk fylgdist með, hrópaði, hvatti, klappaði og sáust tár á hvörmum þegar úrslitin voru ljós.

Íslendingar spila um gullverðlaunin á sunnudagsmorguninn við Frakka kl. 7.45.

Áfram Ísland!



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica