Samskip - Fréttir
Grilldagur08

Fjölmenni á grilldegi Samstarfs

1.9.2008

Fjölmargir starfsmenn Samskipa og Jóna Transport lögðu leið sína ásamt fjölskyldum á Grilldag Samstarfs, starfsmannafélagsins, á laugardaginn. Veðrið lék ekki við gesti framan af en fólk lét það ekki stoppa sig, enda mættu um 300 manns til að gera sér glaðan dag.

Boðið var upp á dýrindis grillmat, siglingar með björgunarbátum Landsbjargar og hoppukastala. Forvarnahús Sjóvá kom með veltibíl til að kenna hvernig hægt er að losa sig út úr bíl sem fastur er á hvolfi. Einnig voru go cart bílar og þrautabrautir fyrir hjól og hlaupahjól til að þjálfa krakka í að fara eftir umferðarreglunum.

Eftir matinn var svo boðið upp á ís frá Emmessís.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica