Samskip - Fréttir

Fornbilarally
Fornbilarally

Samskip flytja inn forna rallýbíla

1.9.2008

Dagana 7. til 12. september n.k. stendur breski bílaklúbburinn HERO (Historic Endurance Rallying Organisation) fyrir gríðarmiklu fornbílarallýi hér á landi. Af þessu tilefni er verið að flytja til landsins með skipum Samskipa hátt í sjötíu eðalvagna frá fyrri tíð, sá yngsti framleiddur árið 1981 en sá elsti er frá árinu 1922.

Keppnin ber yfirskriftina An Icelandic Odyssey og er nokkurs konar sambland af keppni og ferðamennsku, en keppnisleiðin liggur milli nokkurra þekktustu ferðamannastaða landsins. Keppendur aka á fornbílunumum Reykjanes, síðan verður haldið á suðurlandið austur á firði, þaðan til Akureyrar, yfir Kjöl og endað í Reyjavík. En þetta verður þó ekki bara akstur og puð hjá keppendum, því þeir nýta sér ýmsa þjónustu sem ferðamönnum boðið er upp á hvalaskoðun og fleira. Nánar má lesa um keppnina á vef keppninnar.



Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica