Samskip - Fréttir
Fornbilarally
Mynd 1 af 2
1 2

Fornbílar fluttir aftur út eftir velheppnað rallý

18.9.2008

Rallýi 64 fornbíla umhverfis Ísland lauk sl. föstudag við Perluna í Öskjuhlið og voru þeir fluttir aftur út til heimahaganna með Samskipum núna í vikunni.

Keppnin var skipulögð af bresku fornbílafélagi sem nefnist HERO eða Historic Endurance Rallying organisation. Keppnisbílarnir og áhafnir þeirra komu víða að. Flestir þó frá Bretlandi, en einnig frá Frakklandi, Hollandi, Þýskalandi og víðar. Einn bíll og áhöfn hans var frá Íslandi - eldri gerðin af Trabant.

Ljóst er að keppendur lögðu mikið á sig til að taka þátt í viðburðinum. Þátttökugjald nam rúmri einni milljón ísl. króna. Innifalið í því var flutningur á bíl með Samskipum milli Bretlands og Íslands báðar leiðir, keppnisgjöld og gisting.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica