Samskip - Fréttir

Sjavarutvegssyningin-isl-08
Frá Sjávarútvegssýningunni 2007

Styttist í íslensku sjávarútvegssýninguna

24.9.2008

Íslenska sjávarútvegssýningin verður haldin dagana 2.-4. október í Fífunni í Kópavoginum. Samskip, Landflutningar-Samskip og Jónar Transport, dótturfyrirtæki Samskipa, munu taka þátt að venju enda frábær vettvangur til að hitta viðskiptavini og aðra gesti.

Básinn á sýningunni er í Höll 2 nr. P87 og P88. Samskip vænta mikils af þátttöku í sýningunni, því á henni gefst frábært tækifæri til að hitta viðskiptavini félagsins í sjávarútveginum og tengdum greinum. Auk þess er sýningin góður vettvangur til að kynna þjónustu félagsins enn betur fyrir gestum.

Í básnum verður boðið upp á veitingar ásamt bæklingum og öðru kynningarefni.

Allar nánari upplýsingar um sýninguna er að finna á www.icefish.is

Sjáumst í Fífunni



Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica