Samskip - Fréttir
Nýr svæðisstjóri Samskipa á Ítalíu
Stefano Antonini hefur tekið við stöðu svæðisstjóra hjá Samskipum á Ítalíu. Stefano hefur mikla reynslu af fjölþátta gámaflutningum (multimodal) og mun hafa yfirumsjón með starfsemi Samskipa á Ítalíu sem og bera ábyrgð á þjónustu félagsins gagnvart viðskiptavinum.
„Í ítalska markaðinum felast mörg tækifæri fyrir skilvirkar, áreiðanlegar og umhverfisvænar flutningalausnir eins og Samskip bjóða upp á. Ég hlakka til að þróa starfsemi okkar á Ítalíu frekar og ná auknum árangri í rekstri, sölu og þjónustu til viðskiptavina“ sagði Antonini þegar tilkynnt var um ráðningu hans til Samskipa.
„Við erum mjög ánægð með að fá Stefano til liðs við okkur. Reynsla hans og þekking á ítalska markaðinum á eftir að skila sér beint í auknu virði til viðskiptavinanna. Með aukinn liðsstyrk og sterkan rekstur á svæðinu munu Samskip styrkja stöðu sína enn frekar á Ítalíu“ sagði Jens Holger Nielsen, framkvæmdastjóri gámaflutningasviðs Samskipa í Evrópu.
