Samskip - Fréttir
IceFish08

Fjölmargir litið við á Íslensku sjávarútvegssýningunni

3.10.2008

Fjölmargir viðskiptavinir og gestir hafa litið við á bás Samskipa, Landflutninga-Samskipa og Jóna Transport á Íslensku sjávarútvegssýningunni. Óhætt er að segja að sýningin fari vel af stað, þrátt fyrir að vetur konungur hafi óvænt gengið í garð seinnipartinn á fimmtudeginum. Er sýningin opin föstudag og lýkur kl. 16 á laugardag og því um að gera að nýta tækifærið og skoða þær nýjungar og lausnir sem eru í boði fyrir sjávarútveginn og tengdar greinar. Sjá nánar á vef´syningarinnar.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica