Samskip - Fréttir
Samskip Negative Logo small

Samskip miða komutilkynningar við opinbera gengisskráningu Seðlabanka Íslands

16.10.2008


Staðan á gjaldeyrismörkuðum

Kæri viðskiptavinur.

Vegna bankakreppunnar og hins óvenjulega ástands sem skapast hefur á gjaldeyrismörkuðum, hafa Samskip tekið þá ábyrgu afstöðu að miða komutilkynningar félagsins við opinbera gengisskráningu Seðlabanka Íslands eins og hún er á hverjum tíma. Verði veruleg frávik á gengi frá útgáfu komutilkynningar til gjalddaga reiknings áskilja Samskip sér rétt til að endurskoða forsendur reiknings.

Með þessum vonumst við til að geta lagt okkar lóð á vogarskálarnar til að koma á stöðugleika í gjaldeyrisviðskiptum þjóðarinnar. Við gerum okkur jafnframt grein fyrir því að við gætum þurft að endurskoða þessi ákvæði verði forsendur þannig og áskiljum við okkur rétt til þess.

Með ósk um áframhaldandi gott samstarf

f.h. Samskipa
Innflutningsdeild



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica