Samskip - Fréttir
Island-faereyjar

Samskip aðlaga starfsemina að breyttu efnahagsumhverfi / Samskip adjusts Iceland Services to changed economic environment

31.10.2008

Í ljósi þeirra efnahagsþrenginga sem dunið hafa yfir þjóðina og minnkandi vöruinnflutnings til landsins hefur siglingaáætlun Samskipa til og frá Íslandi verið endurskoðuð og munu þrjú skip annast flutninga félagsins á þessari leið, í stað fjögurra áður.

Akrafell hættir siglingum milli Íslands og meginlands Evrópu og fer í önnur verkefni, ótengd Íslandi. Hvassafell heldur hins vegar áfram áætlunarsiglingum milli Reyðarfjarðar, Kollafjarðar í Færeyjum, Rotterdam og Immingham á Bretlandseyjum en skipið hættir að hafa viðkomu í Reykjavík. Með þessum breytingum er hægt að tryggja viðkomu Hvassafellsins á þessum stöðum með 8 til 9 daga millibili.

Engar breytingar verða á áætlunarsiglingum Arnarfells og Helgafells sem áfram fylgja vikulegri áætlun milli Reykjavíkur, Grundartanga, Vestmannaeyja, Immingham, Rotterdam, Cuxhaven í Þýskalandi, Varberg í Svíþjóð, Árósa í Danmörku og Kollafjarðar.

Með þessum breytingum, sem hafa þegar tekið gildi, eru Samskip að aðlaga flutningsgetu sína að breyttu efnahagsumhverfi og draga úr kostnaði.

------------------------------------------------------- 0 -------------------------------------------------

Samskip adjusts Iceland Services to changed economic environment

In light of the economic crisis that is engulfing the Icelandic nation, in addition to declining imports, Samskip’s sailing schedule to and from Iceland has been reviewed and restructured: three container vessels will now handle the company’s transport on this route instead of the previous four.

Akrafell will no longer sail between Iceland and mainland Europe, but will take on other tasks unrelated to Iceland. Hvassafell will continue its scheduled route between Reyðarfjörður in East Iceland, Kollafjørður in the Faroe Islands, Rotterdam, and Immingham in Britain, but now without calling Reykjavík. These changes will ensure that Hvassafell continues servicing these ports at 8-9-day intervals.

No changes are being made to Arnarfell’s and Helgafell’s scheduled sailings. They will continue to service their weekly route between Reykjavík, Grundartangi, the Westman Islands, Immingham, Rotterdam, Cuxhaven in Germany, Varberg in Sweden, Aarhus in Denmark and Kollafjørður.

With these changes, which have already been implemented, Samskip has been able to adjust its transport capacity to meet Iceland's changed economic environment and trim costs.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica