Samskip hljóta Starfsmenntaverðlaunin 2008
Samskip hf. hljóta Starfsmenntaverðlaunin 2008 í flokki fyrirtækja fyrir framúrskarandi árangur í menntunarmálum starfsfólks. Ásbjörn Gíslason forstjóri Samskipa veitti verðlaununum viðtöku úr hendi forseta Íslands við hátíðlega athöfn í dag.
Starfsmenntaverðlaunin eru dýrmæt viðurkenning fyrir mannauðs- og fræðslustefnu Samskipa en undanfarin ár hefur metnaðarfullt fræðslustarf verið einn af lykilþáttum í starfsemi félagsins.
„Starfsmenntaverðlaunin eru okkur hjá Samskipum sannarlega hvatning til áframhaldandi góðra starfa og þökkum við þennan mikla heiður,“ segir Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa.
Ásbjörn segir ríka áherslu lagða á það hjá Samskipum að fræðsluferlið sé virkt út um allt fyrirtækið og að það nái til fræðslu allra starfsmanna. Starfsmenntun verði þannig hluti af framtíðaráætlunum starfsmanna því þeir fái tækifæri til að auka við þekkingu sína og færni í núverandi starfi og afla sér þekkingar á nýjum sviðum.
„Við leggjum áherslu á að starfsmenn þróist í starfi enda er það forsenda þess að fyrirtækið geti haldið áfram að stækka og styrkjast. Starfsfólkið þarf að vera vel að sér og skilja hvernig best er að framkvæma hlutina og taka ákvarðanir sem byggðar eru á faglegum skilningi á viðskiptavinum fyrirtækisins og þörfum þeirra.“
Flutningaskóli Samskipa og markviss fræðsla
Boðið er uppá markvissa fræðslu hjá Samskipum fyrir starfsmenn, s.s. sérsniðna fræðslu fyrir ákveðna hópa sem mótast af þörfum félagsins, lögbundna réttindafræðslu, fræðslu um öryggismál, þjónustu, söluhæfni, sjálfseflingu, mannleg samskipti, þjálfun í tæknilegri færni, nýliðafræðslu, stjórnendafræðslu, tungumálanám, íslenskunám fyrir erlent starfsfólk og margs konar einstaklingsfræðslu.
Einnig hefur félagið stofnað Flutningaskóla Samskipa þar sem boðið er upp á sérhæft nám fyrir starfsmenn félagsins sem eiga stutta formlega skólagöngu að baki. Námið er viðurkennt af menntamálaráðuneytinu til allt að 23 eininga á framhaldsskólastigi en aðalmarkmið skólans er að styrkja faglega hæfni starfsmanna, auka sjálfstraust þeirra og möguleika á starfsþróun.
Þetta er í níunda sinn sem Starfsmenntaverðlaununum er úthlutað en að þeim standa Starfsmenntaráð og Mennt, samstarfsvettvangur atvinnulífsins, en verðlaunin eru hugsuð sem hvatning fyrir fyrirtæki sem vinna framúrskarandi starf á sviði starfsmenntunar.

