Samskip virkja auð kvenna
Hjá Samskipum, sem á dögunum hlutu Starfsmenntaverðlaunin 2008 í hópi fyrirtækja, er nýlokið 10 vikna leiðtoganámskeiði fyrir konur til að bæta hæfni í mannlegum samskiptum og efla sjálfstraust og tengslanet.
Virkjum auð kvenna hjá Samskipum var yfirskrift námskeiðsins og alls luku 20 konur, úr nær öllum deildum fyrirtækisins, náminu sem byggðist m.a. á sérvöldum verkefnum til hagsbóta fyrir starfsdeild viðkomandi. Var almennt mikil ánægja hjá konunum með fyrirkomulag námskeiðsins og einnig þakklæti fyrir að fá þetta tækifæri til að bæta sig, bæði í leik og starfi.
„Við kynntumst líka svo vel hver annarri og fengum að spreyta okkur á raunverulegum verkefnum sem reyndu á og nú er í gangi mikill metnaður til að tryggja að afraksturinn verði góður og viljum við gjarnan að félagið njóti þess líka því við sjálfar græddum svo mikið á þessu skemmtilega námskeiði,“ segir Ólöf Ólafsdóttir, launafulltrúi og einn þátttakendanna.
Í lok námskeiðsins var forstöðumönnum og framkvæmdastjórn Samskipa boðið að hlýða á afraksturinn og segja má að þessi mikli kvenauður sem kynnti verkefnin hafi komið gestum skemmtilega á óvart, bæði með frábærum kynningum og metnaðarfullum umbótaverkefnum.
Kennari á námskeiðinu var Lára Óskarsdóttir frá Dale Carnegie og naut hún aðstoðar Heiðrúnar Arnsteinsdóttur og Jóhönnu Lindar Jónsdóttur hjá Samskipum.

