Samskip - Fréttir
Samskip taka í notkun nýjan þjónustuvef í Evrópu
Gámaflutningasvið Samskipa í Evrópu (MCL) hefur tekið í notkun nýjan þjónustuvef í kjölfar endurskipulagningar á rafrænni þjónustu til viðskiptavina. Samskip í Evrópu bjóða nú upp á tvær leiðir í rafrænum samskiptum, annars vegar nýja þjónustuvefinn og hins vegar beinar EDI-tengingar á milli kerfa.
Viðskiptavinir Samskipa í Evrópu geta nú tengst þjónustuvefnum hvar sem er og hvenær sem er til að nálgast upplýsingar um viðskipti sín við félagið. Hægt er að bóka og rekja sendingar og skoða yfirlit yfir sendingar og reikninga. Óhætt er því að fullyrða að vefurinn veitir viðskiptavinum betri yfirsýn yfir viðskipti sín við Samskip.

