Samskip - Fréttir
Hvassafellny

Hvassafell í erfiðleikum í Rotterdam

29.12.2008

Við losun Hvassafells – leiguskips Samskipa – í Rotterdam í gær kom í ljós að talsverður sjór hafði komist í eina lest skipsins þar sem m.a. voru gámar sem innihalda efnið “Aluminium Dross”, sem við snertingu við vatn hvarfast og veldur þá hita og jafnvel íkveikju.  

Hafnaryfirvöld í Rotterdam tóku strax við stjórn á vettvangi og telja sig hafa fulla stjórn á aðstæðum.

Áhöfn Hvassafellsins er ekki neinni hættu en ekki er vitað á þessari stundu hvað olli því að sjór komst í lest skipsins. Hlutaðeigandi yfirvöld munu sjá um rannsókn málsins.

Unnið er að hreinsun og eyðingu efnanna með yfirvöldum.



Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica