Samskip - Fréttir

Akrafell-nytt_08
Akrafell

Akrafell leysir Hvassafell af meðan það verður hreinsað

6.1.2009

Þann 31. desember s.l. var tilkynnt að Hvassafell hefði lent í erfiðleikum í Rotterdam vegna hitamyndunar í "ál drossi" sem er í fjórum gámum um borð í Hvassafelli, en vatn komst í þá og myndaði hitann. Yfirvöld í Rotterdam töldu að þau hafi verið búin að ná tökum á vandanum. Í samráði við eiganda skipsins og tryggingarfélög fékk Samskip fyrirtæki í Rotterdam sem sérhæfir sig í eyðingu efnavöru til að annast förgun á farminum. Áætlað er að hefja losun gámanna úr skipinu í dag og að lest skipsins verði hreinsuð skipsins í framhaldi af því.

Þar sem dráttur hefur orðið á framkvæmd þessari tóku Samskip þá ákvörðun í samráði við eiganda skipsins að Akrafell færi inn á áætlun Hvassafells til að raska ekki áætlunarkerfi Samskipa og til að valda viðskiptavinum ekki óþægindum.

Akrafell er nú í Reykjavík, heldur til Reyðarfjarðar í kvöld og gert er ráð fyrir að Hvassafell komi aftur inn í áætlunina í Rotterdam í næstu viku



Senda grein






Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica