Samskip - Fréttir

Breytingar á þjónustu Samskipa til og frá Noregi

12.3.2009

Iceland_Norway_Service_120209 loresFrá og með 1. apríl nk. mun fyrirkomulag flutninga Samskipa til og frá Noregi breytast. Ástæða þessa er að þjónusta lestarinnar, sem flutt hefur sendingar fyrir Samskip á milli Osló í Noregi og Varberg í Svíþjóð, er að taka breytingum. 

Flutningum á vegum Samskipa til og frá Noregi verður framvegis sinnt með skipum í gegnum Rotterdam og verða viðkomuhafnirnar Kristiansand, Breivik, Larvik, Osló og Moss. Þessi fjölgun viðkomustaða í Noregi býður viðskiptavinum Samskipa upp á fjölbreyttari möguleika í flutningum til og frá Noregi.

 

 

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica