Samskip - Fréttir
Samskip á stærstu sjávarútvegssýningu heims í Brussel
Samskip taka nú sem fyrr þátt í stærstu sjávarútvegssýningu heims í Brussel en sýningin verður opnuð á morgun, þriðjudag, og stendur fram á fimmtudag. Er þetta í 14. sinn sem félagið tekur þátt í sýningunni. Unnið er að uppsetningu sýningarbássins, sem er minni þetta árið og eru þátttakendur frá Samskipum færri en oft áður en allt stefnir þó í góða sýningu.

