Samskip - Fréttir

Landflutningar - Samskip velja TrackWell Flota fyrir allan bílaflota sinn og undirverktaka

8.5.2009

 

bíll aku-kópaskerTrackWell og Landflutningar - Samskip hafa undirritað samning um innleiðingu á TrackWell Flota fyrir bílaflota Landflutninga og undirverktaka. TrackWell Floti er hluti af lausn sem í daglegu tali nefnist TrackWell Forðastýring eða TrackWell MRM (Mobile Resource Management).

 

„Eftir samanburð á þeim lausnum sem í boði voru völdum við TrackWell Flota vegna möguleikana sem felast í kerfinu fyrir okkar þarfir. Markmið með notkun kerfisins eru að auka öryggi starfsmanna okkar og samferðamanna í umferðinni ásamt því að auka þjónustu okkar með minni tilkostnaði. Okkar mat var að TrackWell Floti væri besti valkosturinn”  Sagði Ingi Þór Hermannsson, forstöðumaður Landflutninga - Samskipa.

 

„Þessi samningur er mikilvægur fyrir TrackWell.” Sagði Þórður Ingason sölustjóri TrackWell.
Hér er ekki aðeins um stóran bílaflota að ræða heldur einnig blandaða og áhugaverða notkun. Landflutningar - Samskip eru með minni bíla í innanbæjarakstri og stærri bíla þjóðvegaakstri með dýrmætan farm og oft við erfið skilyrði. TrackWell Floti mun stuðla að bættri nýtingu bílaflotans, lækkun rekstrarkostnaðar og auknu öryggi starfsmanna.”

 

TrackWell Floti kemur til móts við öryggiskröfur Samskipa m.a. með miðlun veðurupplýsinga beint inn í TrackWell Flotakerfið sem gerir flotastjóra kleift að fylgjast með þróun veðurs á öllum akstursleiðum á landinu og vara við ef verður eru válynd.

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica