Norskar hjólhýsakonur á leið til Íslands
Fimm norskar hjólhýsakonur, sem setja munu sterkan svip á Listahátíð í Reykjavík, eru nú á leið til landsins með Samskipum. Var þeim skipað út í Árósum þaðan sem þeim verður siglt sem leið liggur til Íslands. Eru þær væntanlegar til landsins í næstu viku.
Norsku hjólhýsakonurnar eru verk listakonunnar Marit Benthe Norheim og hafa vakið mikla athygli á Norðurlöndunum og víðar. Skúlptúrarnir munu meðal annars prýða Austurvöll laugardaginn 16. maí og verða þar til sýnis, bæði að innan og utan, samhliða öðrum áhugaverðum listviðburðum sama dag.
Þá verða hjólhýsakonurnar víða á reiki um bæinn meðan á Listahátíð stendur, eða til 31. maí.

