11 flutningatæknar útskrifast úr Flutningaskóla Samskipa
Ellefu flutningatæknar voru útskrifaðir úr Flutningaskóla Samskipa við hátíðlega athöfn í dag að viðstöddum forseta Íslands og fleiri góðum gestum. Skólinn, sem starfræktur er í samstarfi við Mími-símenntun, er sérhæfður fyrir bílstjóra Samskipa og starfsfólk í vöruhúsum og á gámavelli félagsins.
Flutningaskóli Samskipa er fyrir metnaðarfullt starfsfólk Samskipa sem náð hefur 20 ára aldri og er með stutta formlega skólagöngu að baki. Aðalmarkmið hans að styrkja faglega hæfni starfsfólks, auka sjálfstraust þess og möguleika á starfsþróun.
Skólinn er viðurkenndur af menntamálaráðuneytinu til allt að 23 eininga í framhaldsskóla. Kennt er samkvæmt námskrá Samskipa sem byggð er á viðurkenndri námskrá Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, Vöruflutningaskólanum, og fá útskrifaðir nemendur titilinn flutningatæknir.
Námið tekur tvær annir, samtals 339 kennslustundir, og fer það fram á vinnutíma í kennslustofu Samskipa og á athafnasvæði félagsins við Kjalarvog.
Starfsfólk samdi kennslubók
Kennarar á vegum Mímis-símenntunar kenna alla almenna áfanga í náminu en sérfræðingar Samskipa kenna flutningafræði og öryggismál ásamt vinnustaðanámi sem fer fram á athafnasvæði fyrirtækisins við Kjalarvog.
Þá er gaman að geta þess að starfsfólk Samskipa hefur sjálft samið kennslubókina í flutningafræðum sem kennd er við skólann og er hún talin vera sú fyrsta á Íslandi í því fagi.

