Samskip - Fréttir

MAN vélaframleiðandinn prófar nýjungar í vélum Helgafells

4.6.2009


VTA túrbína og Man félagar 5Í síðustu viku unnu sérfræðingar frá þróunardeild þýska vélaframleiðandans MAN að því að koma fyrir tilraunabúnaði í aðalvél Helgafellsins sem á að bæta brennslu og minnka mengun og eyðslu. Um er að ræða búnað sem stjórnar loftstreymi í afgasblásara vélarinnar og er þetta í fyrsta skipti sem verksmiðjurnar prófa þennan búnað við eðlilegar aðstæður í fjórgengis díeselvél.

Samstarfið við MAN B&W, sem er stærsti vélaframleiðandi heims, má rekja til samnings sem gerður var árið 2005 fljótlega eftir að Samskip tóku við Arnarfelli og Helgafelli nýjum. Aðalvélar beggja þessara skipa eru af gerðinni MAN díesel og eru þær með nýjustu gerðum véla sem MAN framleiðir og eru afar hagkvæmar bæði hvað varðar eyðslu og mengandi útblástur.

Samningurinn felur í sér að MAN fær að „reynsluprófa" í aðalvélum skipanna ýmsar nýjungar og endurbætur sem eru í þróun hjá verksmiðjunum á hverjum tíma. Þetta er Samskipum að kostnaðarlausu en fyrir vikið eru vélarnar undir enn nánara eftirliti framleiðandands en ella.

Þróun nýrra vélarhluta er strangt ferli sem meðal annars felur í sér að eftir að hlutirnir hafa verið framleiddir eru þeir fyrst prófaðir í langan tíma í vélum í verksmiðjunni. Síðan taka við ítarlegar prófanir í vélum við mjög breytilegar aðstæður undir nánu eftirliti sérfræðinga verksmiðjanna. Þeir vélahlutir sem aðallega hafa verið reynslukeyrðir og prófaðir í skipum Samskipa tengjast aðallega eldsneytiskerfum vélanna.

Á myndinni má sjá vélstjóra Helgafellsins, þá Magnús Helgason, Svan Eyþórsson og Grétar Þorsteinsson, sem hafa tekið virkan þátt í uppsetningu og prófunum á nýjum búnaði í aðalvél skipsins, ásamt sex starfsmönnum MAN verksmiðjanna sem stjórnuðu uppsetningu og athugun á búnaðinum.  

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica