Samskip - Fréttir
Rífandi gangur hjá frystivörumiðstöð Samskipa í Álasundi
Mikill uppgangur er hjá frystivörumiðstöð Samskipa í Noregi og hefur velta félagsins aukist um
40% frá því það var sett á laggirnar fyrir tveimur árum og er umsetningin nú um 80 þúsund tonn á
ári.
Félagið kláraði nýlega stóran loðnusamning og búist er við stórauknum umsvifum á næstunni
með frosinn makríl fyrir Asíumarkað, í kjölfar 40% aukningar á makrílkvóta Norðmanna.
Jon Eikrem, framkvæmdastjóri frystivörumiðstöðvarinnar í Álasundi situr fyrir svörum í pistli vikunnar.

