Samskip - Fréttir

Ný herferð Landflutninga um öryggi í akstri

24.7.2009

2009-07-17 Merkingar á tækjum 001

Þessa dagana er verið að koma fyrir merkingum á bílum og vögnum Landflutninga sem hvetja til öryggis í umferðinni. Merkingin er hönnuð af auglýsingastofunni Ennemm en Merking sér um að merkja. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slík herferð er í gangi hjá Landflutningum, en skemmst er að minnast herferðar sem unnin var í samvinnu við SVÞ fyrir tveimur árum svo og gömlu góðu "Ökum varlega" miðunum sem komnir eru til ára sinna. "Sjaldan er góð vísa of oft kveðin".

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica