Samskip - Fréttir

Silver Sea, norskt skipafélag að hluta í eigu Samskipa, yfirtekur tvö frystiskip Eimskips

24.7.2009

 

SILVER_RIVERSkipin eru smíðuð 2007 af Myklebust Verft As í Noregi.  Þau eru 82. metra löng, um 16 metra breið og sérstaklega styrkt til siglinga í ís. Skipin falla vel að flota félagsins, en þau munu einkum lesta fiskafurðir frá Íslandi, Noregi og Hjaltlandseyjum og sigla með afurðirnar til áfangastaða í Rússlandi og Evrópu.

Skipin hafa nú þegar komið nokkrum sinnum til landsins og reynst vel.

Á  m/s Silver River, er skipstjórinn fyrrverandi starfsmaður í stórflutningadeild Samskipa,  Einar Vignir Einarsson.

 

Silver Sea var stofnað árið 2000 af Tormod Fossmark og Fylkisbåtene As.

Samskip As í Noregi, sem var í svipuðum rekstri, sameinast félaginu undir merkjum Silver Sea árið 2002 og Samskip eignuðust 40% hlut í sameinuðu fyrirtæki. Aðrir eigendur voru Tormod Fossmark og Fylkisbaatene. Árið 2005 keyptu Samskip 10% hlut Fylkisbåtene og eiga nú 50% hlut  á móti Tormod sem verið hefur framkvæmdastjóri félagsins frá upphafi. Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa, hefur verið stjórnarformaður frá árinu 2002 er Samskip komu að félaginu.

 

Silver Sea var á upphafsárum með  3-4 frystiskip í rekstri, en umsvifin hafa aukist jafnt og þétt. Fyrirtækið og tengd félög hafa keypt skip eitt af öðru og er flotinn nú 14 frystiskip. Fyrirtækið er í dag annað af tveimur leiðandi félögum í flutningum á frystum afurðum í N-Atlantshafi.  Megin starfsemi félagsins felst í flutningi á frystum fiski frá Noregi, Íslandi, Hjaltlandseyjum og Færeyjum til Eystrasaltslandanna, Rússlands og Evrópu.  Helstu afurðir eru uppsjávar-tegundir; síld, makríll, kolmunni og loðna.  Flutningsmagn er gríðarlegt og sett í samhengi við fiskútflutning Íslendinga, þá er flutt magn mun meira en allt það magn sem Íslendingar flytja út af frystum fiski árlega.

 

Við náðum sambandi við Einar Vigni skipstjóra á m/s Silver River þar sem þeir voru staddir við Garðsskaga á leið til Íslands. Það lá vel á Einari eins og alltaf og hlakkaði hann til að koma inn, þó stoppið yrði aðeins örfáir klukkutímar í þetta sinn. Einar segist afar ánægður með skipið “það er algjör mubla og fer vel með mann” Í áhöfn eru níu harðduglegir menn frá fimm þjóðlöndum. Það er mikið að gera um borð og nægir vart sólarhringurinn. “Við erum á leið til Tromsö með 1300 tonn af rækju frá Kanada” “Þessi túr er 18 dagar en oftast erum við í styttri túrum” “Það er frábær reynsla að vera með þetta skip og afar skemmtileg og krefjandi vinna” segir Einar um leið og hann biður að heilsa öllum heima.

 

Skoðið einnig heimasíðu félagsins http://www.silversea.no/

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica