Samskip - Fréttir
Alltaf í bransanum
Guðríður Birna Ragnarsdóttir heitir hún – í daglegu tali kölluð Birna – og hóf störf hjá Samskipum fyrir rúmlega 23 árum. Hún er fædd á Skaganum, kom í bæinn í skóla, gifti sig og fór að vinna hjá Hafskip. Það var svo 1986 að hún flutti sig yfir í farmskrá Samskipa og ekki leið á löngu þar til hún tók þar við stjórnartaumum sem hún hefur ekki sleppt síðan. Núna stjórnar hún þjónustudeildinni og ferst það vel úr hendi. Birna er nýjasti viðmælandi Samskip.is í Viðtalinu.

