Samskip - Fréttir
143 fleti í einni sendingu frá Tékklandi til Skotlands
Samskip fluttu nýlega 143 fleti með steyptum plötum frá verksmiðju í Tékklandi til byggingasvæðis í Skotlandi, þar sem þau verða nýtt til byggingar bílastæðabyggingar. Eftir mikla leit að réttu lausninni í flutningum á plötunum komu flutningar á fletum með Samskipum best út, en m.a. höfðu verið kannaðir flutningar með bílum á vegum og með ferjum, en fletaflutningar með Samskipum á sjó og með lest reyndust hagkvæmasta lausnin.
Gámaflutningasvið Samskipa í Evrópu (MCL) hefur yfir 30 ára reynslu af fletaflutningum í Þýskalandi, Hollandi, Belgíu og á Bretlandseyjum. Hún kemur að góðum notum við flutninga sem þessa, þar sem áfangastaðir fletanna teygja anga sína sífellt víðar.

