Samskip - Fréttir

Nýtt nafn á frystigeymslum Samskipa í Álasundi og Rotterdam

27.11.2009

frigocare_negFrystigeymslur Samskipa í Álasundi og Rotterdam fá nýtt nafn frá og með 1. desember nk. Geymslurnar munu heita FrigoCare, en þær hafa verið í eigu Samskipa frá árinu 2005 en reknar undir nafni fyrri eigenda Kloosterboer, þar til nú. 

Engin breyting verður á starfseminni og starfsmenn eru þeir sömu og hingað til en FrigoCare í Rotterdam er undir stjórn Jan Bouman en í Álasundi er það Jon Eikrem sem ræður ríkjum. Nýtt merki er einnig kynnt til sögunnar en það er teiknað af auglýsingastofunni Ennemm og hefur beina skírskotun í hitastig eins og nafnið sjálft.  Í smíðum er ný vefsíða fyrir geymslurnar og mun hún fara í loftið innan skamms. 

Um FrigoCare í Rotterdam

Geymslan var byggð 1992 og er staðsett miðsvæðis á gámasvæði hafnarinnar og í þjóðbraut sem tryggir gott aðgengi. Geymslan tekur 12.500 tonn á kæld svæði sem geta verið á bilinu +1° til -23° og umsýslusvæði sem einnig er hitastýrt og tryggir að varan er ætíð við kjörhitastig. Geymslan hefur vottun til geymslu og umsýslu matvæla auk vottunar til eftirlits frá hinu evrópska efnahagssvæði. Geymslan hefur einnig vottuð gæðakerfi eins og BRC, IFS, HACCP og MSC. Geymslan er strikamerkjavædd og býður viðskiptavinum sínum aðgengi í gegnum netið að rauntímaskráningum og skilaboðum.

Um FrigoCare í Álasundi

Geymslan er staðsett í Brevika. Hún er stærsta óháða frystivörumiðstöðin í Noregi með allt að 20.000 tonna geymslurými. Geymslan skiptist í fimm svæði með mismunandi möguleika til geymslu, í hillum, pöllum eða stærri einingum. Auk þess er boðið upp á alla tengda þjónustu s.s lestun, löndun, skjalagerð o.fl. Geymslan er vottuð til geymslu og umsýslu matvæla, hefur allar helstu gæðavottanir og er fullkomlega tölvuvædd með strikamerkingum og rauntíma aðgengi í gegnum vefinn. Í Álasundi starfa 14 starfsmenn, allir með mikla reynslu. Um helmingur alls frosins fisks sem kemur á land í Noregi er skipað upp í Álasundi. Er það aðallega bolfiskur, lax, makríll, loðna og kolmunni sem fer síðan á markað um víða veröld. Mikil og traust viðskiptasambönd eru við Asíu og þá sérstaklega Japan.  

 

FrigoCare Rotterdam BV

FrigoCare Rotterdam BV
Portnumber 2740 / Reeweg 25 (Den Hamweg)
3089 KM Rotterdam
The Netherlands
Sími: +31 88 4001830
Fax:   +31 88 4001840
Tölvup: info.rtm@frigocare.com

Tengiliðir:

Guido van Tienen / Supervisor Planning & Stock control
+31 88 4001832
e-mail: planning.rtm@frigocare.com 

Arno Riedijk / Planning & Stock control
+31 88 4001833
e-mail: planning.rtm@frigocare.com

Kenneth Bisnajak / Supervisor financial administration
+31 88 4001835
e-mail: kenneth.bisnajak@frigocare.com

Bas Guis / Financial administration – debit & credit control
+31 88 4001836
e-mail: bas.guis@frigocare.com

Bob Benningshof / Supervisor warehouse
+31 88 4001830
e-mail: bob.benningshof@frigocare.com 

Jan Bouman / Manager
+31 88 400 1831
e-mail: jan.bouman@frigocare.com 

 

FrigoCare Aalesund AS

FrigoCare Aalesund AS
Breivika Industrivei
6022 Aalesund
Norway
Sími: +47 70 14 91 30
Fax:   +47 70 14 91 31
Tölvup: info.aals@frigocare.com / office@frigocare.no

Tengiliðir:

Jurjen van Weert / assistant manager
+47 7014 83 35   +47 480 53 543
e-mail: jurjen@frigocare.no 

Beate Lid / Financial administration
+47 70 14 83 39         +47 918 61 104
e-mail beate@frigocare.no

Stig Ove Vatnehol / Planner
+47 70 14 83 33  +47 484 07 130
e-mail: stig.ove@frigocare.no

Fredrik Rahnel  / Forman 
+47 70 14 91 30  +47 484 07 131
e-mail:
fredrik@frigocare.no

 

 

Senda grein





Logo
Þetta vefsvæði byggir á Eplica